Fréttir

Körfubolti | 7. nóvember 2003

Frábær umfjöllun í fjölmiðlum um Bikarkeppni Evrópu

Í framhaldi af pistli Tímavarðarins . . . .

Við körfuboltamenn höfum oft kvartað undan því að fá ekki næga athygli fjölmiðla, sérstaklega sjónvarps. En getur verið að við höfum bara ekki haft upp á neitt nógu skemmtilegt að bjóða, svona yfirleitt?

Stjórn Keflavíkur lagði á sig mikla vinnu við að kynna þátttöku félagsins í Evrópukeppninni og náði góðu sambandi við fjölmiðla. Fjölmiðlarnir sáu líka að vel er staðið að málum í Keflavík og þeir sáu að hér væri fréttnæmt efni á ferð.

Og afleiðinging var góð umfjöllun. Mogginn kynnti okkar þátttöku afar vel og skrifaði margar greinar fyrir leikinn, auk þess sem þeir birtu flottar myndir og útskýrðu gang mála. DV gerði einnig vel í kynningu og Fréttablaðið tók þátt í leiknum. Hinar ýmsu stöðvar útvarpsins fjölluðu um þátttöku okkar og tóku mörg viðtöl. Og sjónvarpsstöðvarnar brugðust einnig afar vel við kallinu. Stöð 2 boðaði þjálfarana í skemmtilegt viðtal í Ísland í bítið og fjallaði vel um leikinn í fréttaþætti sínum, bæði fyrir og eftir leik. Góð syrpa kom í Olíssporti.

En rúsínan í pylsuendanum var "Körfuboltakvöld" á RÚV. Samúel Örn fór á kostum í þætti sínum sem helgaður var Bikarkeppni Evrópu í Keflavík. Sá þáttur hafði verið í undirbúningi í töluverðan tíma af Samúel og stjórn Keflavíkur sem tók þátt í kostun ásamt öflugum stuðningsaðilum, Landsbankanum, Samkaupum, Allianz og Soho. Þátturinn hefur vakið mikla athygli og eru menn sammála um að einkar vel hafi til tekist.

Frábær umfjöllun um frábæran viðburð og nú skulum við vona að við höfum sem mest upp á að bjóða á næstunni. Því ef við stöndum okkur þá eru fjölmiðlarnir allir á okkar bandi, svo einfalt er það.