Fréttir

Körfubolti | 31. desember 2003

Frábær umfjöllun um Keflavík

Fyrir nokkrum árum tóku menn eftir því í samantekt RÚV um helstu íþróttaviðburði ársins við útnefningu á íþróttamanni ársins var ekkert minnst á körfubolta. En nú er öldin önnur. Það var sérlega gaman að fylgjast með samantektinni í gærkvöld, þegar fjallað var um það helsta á árinu. Keflavík var þar í aðalhlutverki, enda bæði Íslands- og Bikarmeistari. En rúsínan í pylsuendanum var umfjöllunin um Evrópukeppnina og þann frábæra árangur sem lið okkar hefur náð þar. Ósigraðir á heimavelli í Bikarkeppni Evrópu, það er afrek sem vert er að minnast á. Það er gaman að sjá að tekið er eftir þessu og við erum stoltir af því að hjálpa körfuboltanum að komast í sviðsljósið. Og svo er líka gaman að sjá að körfuboltamaður er orðinn einn af fimm bestu íþróttamönnum landsins. Til hamingju með það Jón Arnór. Kannski hann komist enn ofar á listann og nái að skáka bróður sínum á næstu árum, hver veit? En Ólafur var vel að titlinum kominn, en það hefði líka Eiður Smári verið. Að ekki sé minnst á dansarann . . . hún er 10-faldur heimsmeistari! Frábær árangur sem farið hefur hljótt. Og svo var þarna fulltrúi Reykjanesbæjar, Örn Arnarson, þótt hann hafi oft verið ofar á listanum á undanförnum árum. Fróðlegt verður að sjá hvort Örn slái Gunnari Einarssyni við í keppninni um íþróttamann ársins hjá Reykjanesbæ, en hann verður útnefndur á morgun, gamlársdag, kl. 13 í íþróttahúsi Njarðvíkur. Allir velkomnir þangað. Við vonumst að þó sjálfsögðu eftir útnefningu Gunnars, hann væri vel að henni kominn  . . .