Frábær úrslitakeppni í NBA
Eins og venjulega á þessum tíma árs er úrslitakeppnin í NBA í fullu fjöri. Þrátt fyrir að mörgum finnist alltaf eitthvað vanta síðan Jordan hætti hjá Bulls, þá verður ekki fram hjá því litið að úrslitakeppnin í ár er með allra skemmtilegasta og mest spennandi móti.
Nú standa yfir undanúrslit Vestur- og Austurdeilda, alls eru 8 lið eftir í keppninni og kljást þau núna í fjórum viðureignum. Fyrir örfáum dögum var staðan 2-2 í öllum fjórum viðureignunum og er það í fyrsta sinn í sögu NBA sem slík staða kemur upp í öllum viðureignunum. Segir það meira en margt annað um hve jöfn og spennandi keppnin er.
Í nótt náðu Lakers að vera fyrsta liðið til að komast áfram með 4-2 sigri gegn meisturum San Antonio Spurs. Segja má að úrslit hafi ráðist með hreint ótrúlegu skoti Dereks Fisher á síðustu millisekúndunni í 5. leiknum. Að Lakers skyldu ná sigri í þeim leik eftir glæsikörfu Tim Duncans 0,4 sek fyrir leikslok var eitt það ótrúlegasta sem maður hefur nokkurn tímann séð í boltanum. Annars var Kobe Bryant maður seríunnar og er hann líklegast sá sem mest gaman er að horfa á, minnir oft á Michael Jordan.
Í kvöld má fylgjast með Minnesota og Sacramento í 6. leik liðanna, en sú sería hefur verið geysi fjörug, t.d. fór síðasti leikur í 3 framlengingar (!). Því verður örugglega háspenna í kvöld, Minnesota er með pálmann í höndunum, en það yrðu vissulega gríðarleg vonbrigði fyrir Sacramento að komast ekki í úrslit Vesturstrandarinnar, enda er liðið stjörnum prýtt, með þá Webber, Stojakovic og Bibby í aðalhlutverkum. Hinu megin eru líka stórstjörnur, þeir Garnett, Sprewell og Cassell. Allt leikmenn sem gaman er að horfa á.
Austurströndin hefur ekki verið í sviðsljósinu eftir að Jordan hætti hjá Bulls 1998. Síðan þá hefur Vesturdeildin hreinlega átt NBA. Nú eru hins vegar blikur á lofti og telja margir að lið eins og Indiana gæti átt góða möguleika gegn hvaða vesturstrandarliði sem er, ekki síst þar sem þeir hafa frábæra varnarmenn til að kljást við stóra miðherja Vesturstrandar, líkt og Shaq. Sjáum hvað setur.