Fréttir

Körfubolti | 19. nóvember 2004

Frábærir stuðningsmenn

Leikurinn í gær var hinn mesta skemmtun, þó ekki hafi hann unnist.  Ótrúlegar 3 stiga körfur frá Magga og Gunna, svakalegar troðslur frá Nick og Glover og skemmtileg tilþrif frá Sverrir og Jonna svo eitthvað sé nefnt.  Þetta eru einfaldlega lang skemmtilegustu leikirnir og vonandi að við komust áfram svo við fáum fleiri svona leiki. Áhorfendur voru alveg frábærir, tæplega 1000 mans í húsinu og stemmingin geggjuð.  Það var frábært í lokin að sjá alla standa upp í húsinu á láta vel í sér heyra.  Svo eiga áhorfendur að vera.

Nú í kvöld mæta okkar menn í Laugardalshöll og mæta Njarðvík í 4 liða úrslitum Hópbílabikar og það verður hörkuleikur. Stelpurnar mæta svo Grindavík í Höllinni á laugardag kl 14.00 í sömu keppni.  Það verður ekki minna fjör og gaman að fylgast með stelpunum sem eru að spila vel  þessa dagana. Unnu Njarðvík sanfærandi í síðasta leik á heimavelli.

 

 

 

Allir sem einn áfram Keflavík. ( mynd fengin að láni frá Vf.)