Frakkarnir búast við góðu liði frá Keflavík
Á heimasíðu Hyeres Toulon Var (HTV) er rætt um Keflavík á þennan hátt:
Í fyrsta sinn í ungri sögu sinni leikur HTV heimaleik í Evrópukeppni. Andstæðingarnir í Vesturdeild Bikarkeppni Evrópu eru íslenska liðið Keflavík. Keflavík er óþekkt lið en reikna má með að þar fari sterkt lið ef marka má sigur þeirra í síðustu viku gegn toppliði Portúgals Ovarense.
Nú er bara að vona að Keflavíkurdrengir nái upp svipaðri baráttu og gegn Ovarense, því þá er ýmislegt hægt . . .