Fréttir

Körfubolti | 23. janúar 2004

Frakkarnir segja að Keflvíkingar séu grófir amatörar sem spili skrýtinn körfubolta!!! - Í KVÖLD SKIPTA ÁHORFENDUR SVAKA MIKLU MÁLI!!!

Lesa má ýmislegt skemmtilegt um Keflavíkurliðið á heimasíðu Dijon, www.jdadijon.com, en þar er ítarlega fjallað um leikinn s.l. miðvikudag og einnig spáð í spilin varðandi leikinn í kvöld. Frökkunum þykir Keflavík spila skrýtinn körfubolta sem byggist aðallega á því að berjast og vera grófur. Þeir tala t.d. um að brot Magga hafi verið gróft og að Morlende hafi einungis verið að verja sig þegar hann réðst á Magga í kjölfarið . . . Góður!

Þeir segja að Kef sé tveggja mana lið og að enginn geti neitt nema Nick og Derrick. Jú, Maggi getur skotið þristum, en hinir eru bara amatörar sem hafa mikinn vilja en séu illa innrættir . . .

Dæmi nú hver fyrir sig. Við sem vorum á leiknum vorum frekar undrandi að sjá 2ja metra risa sem eru 120 kíló vera að gefa olnbogaskot og hóta að berja menn sem voru meira en höfðinu minni. Eins var hreint ótrúlegt að stjarnan þeirra, Morlendes, númer 5, hafi ekki fokið út úr húsi, eftir árás hans á Magga. Ég held að hann ætti skilið að fá álíka mótttökur hjá okkar áhorfendum eins og við fengum hjá þeim. Það er enginn ástæða til að taka á móti sjóuðum atvinnumönnum með silkihönskum eftir að þeir fengu yfir 3000 manns til að baula á Magga hjá okkur, ALLAN LEIKINN!! Sérstaklega var hávært þegar Maggi var á vítalínunni.

Og svo til að kóróna allt saman, þá neituðu sumir leikmenn Dijon að taka í hendurnar á okkar mönnum. Það sýnir ekki mikla fagmensku, eða hvað?

Að gefnu tilefni vill Heimasíðan taka fram að hún ber mikla virðingu fyrir þessum klúbbi, JDA Dijon, en það er greinilegt að þeir beita öllum brögðum til að sigra. Við skulum ekki láta hugfallast gegn slíku, heldur mæta þeim af fullri hörku.

Það sama gildir um áhorfendur. Þeir þurfa að styðja svaka vel við bakið á okkar mönnum og taka virkan þátt í þessari orrustu, því hitinn verður mikill í kvöld!