Fréttir

Körfubolti | 8. maí 2003

Framhalds-aðalfundur verður haldinn laugardaginn 31. maí – formannaskipti í vændum?

Aðalfundur körfuknattleiksdeildarinnar verður haldinn laugardaginn 31. maí í K-húsinu við Hringbraut. Dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf, birting uppgjörs síðustu leiktíðar og stjórnarkjör, en núverandi stjórnarmenn eru þessa daganna að taka ákvörðun um framhald eða ekki-framhald. Verið er að ganga frá uppgjöri og er talið líklegt að fjárhagsleg niðurstaða ársins verði ásættanleg.

Formaðurinn, Hrannar Hólm, tjáði heimasíðunni að hann vildi taka sér frí frá stjórnarstörfum í nokkur ár, eftir nokkur annasöm ár. Ekki er þó ljóst á þessari stundu hver mun fylla hans skarð. Nokkur ný nöfn hafa verið nefnd í sambandi við stjórnina, en þessi mál munu skýrast fljótlega.

Núverandi stjórn hefur í hyggju að ráða starfsmann/framkvæmdastjóra til að sinna ákveðnum verkefnum, ekki síst í tengslum við fjáraflanir og ýmsar framkvæmdir, þvi stjórnarmeðlimir eru oft of uppteknir í eigin starfi til að geta sinnt öllum þeim körfuboltamálum sem upp kunna að koma.