Franskar steikur í Sláturhúsinu í kvöld
Jæja, kæru Netverjar. Heimasíðan var á flakki en er komin aftur í gang, rétt í tæka tíð fyrir stórslaginn gegn Frökkunum frá sinnepslandinu í Dijon. Mótttökurnar sem Keflavík fékk í Dijon voru í raun bæði frábærar og aggressívar. Annars vegar verðum við að segja að Dijon klúbburinn er afar prófessional og framkvæmd leiksins og öll umgjörð er til mikillar fyrirmyndar. Vel var tekið á móti okkur og okkur sýnd mikil gestrisni allan tíman, það gerist ekki betra. Því munum við taka eins vel á móti gestum okkar frá Dijon eins og kostur er, eins og við gerum alltaf.
Ein leikurinn sjálfur og leikmenn - það var allt annað mál. Þetta franska lið er hrikalega öflugt og þeir hafa sérstaklega tvo frábæra leikmenn sem unun er að horfa á, menn sem hafa allan pakkann, fjótir, drippla, troða, dræva, skjóta og alles. Þetta eru Morlende, sá franski, númer 5 og Barret, sá kanadíski, númer 7. Morlende þykir einn efnilegasti bakvörður í Evrópu, 21 árs að aldri. Hann skoraði 26 stig, tók 8 fráköst og gaf 12 stoðsendingar í leiknum á þriðjudaginn. Auk þess tróð hann yfir okkur svo um munaði. Auk þessara tveggja eru stóru strákarnir, Natsvlishvili frá Georgíu og Monnet, sá franski, öflugir. Sérstaklega sá georgíski, en hann er mikill rumur og labbaði hreinlega yfir okkar menn í teignum, enda örugglega um 120 kíló að þyngd. Hann hótaði að berja Gunna Einars eftir leikinn og var með tóma stæla allan tímann.
Þessir ágætu menn eru góðir í körfubolta, en ógurlega skapvondir. Þeir þoldu akkúrat ekkert mótlæti í leiknum gegn okkur. Það sást best eftir að Maggi braut óíþróttamannslega á Morlende (sem er "everybodys darling" í Dijon). Maggi fékk réttilega dæmda á sig villu, en Morlende réðst á hann með miklu offorsi og sá er þetta ritar var ekki í nokkrum vafa um að honum yrði hent úr húsinu. En nei, hann fékk líka bara villu !!! Eftir þetta atvik var höllin á suðupunkti og 3046 áhorfendur brjálaðir út í Magga og Keflavík, en 4 áhorfendur hrópuðu óspart Áfram Keflavík og drulluðu hægri og vinstri yfir allt og alla :)
Þetta umhverfi var frekar óvinsamlegt, en þetta er alvöru klúbbur og auðvitað á að vera erfitt að leika á heimavelli alvöru liðs. Það sama þarf að gerast hjá okkur - við viljum vera alvöru klúbbur og höfum ekki tapað í rúmlega eitt ár á heimavelli, eða síðan 7. janúar 2003. Nú fáum við stekasta andstæðing okkar í háa herrans tíð í heimsókn og við skulum svo sannarlega láta þá þjást . . . látum þá finna af hverju heimavöllurinn okkar er kallaður Sláturhúsið!!!