Fréttir af 9. flokki karla
9.flokkur drengja keppti í dag í undanúrslitum íslandsmótsins í Valsheimilinu. Drengirnir öttu kappi við lið Breiðabliks. Drengirnir byrjuðu leikinn betur og leiddu meiri hlutann af fyrri hálfleik. Breiðablik endaði fyrri hálfleikinn betur en Keflavík og leiddi í hálfleik með 6 stigum, 30-24. Í seinni hálfleik gekk hvorki né rak hjá drengjunum og virtist þeim oft á tíðum ómögulegt að koma knettinum í körfuna úr upplögðum færum. Breiðablik gekk á lagið og kom sér í þægilega stöðu. Munurinn jókst svo jafnt og þétt og endaði leikurinn þannig að Breiðablik sigraði örugglega 69-44. Guðmundur og Júlíus voru þeir einu sem spiluðu að eðlilegri getu í dag en aðrir hafa oft skilað betri leik.
Íslandsmótinu er nú lokið hjá drengjunum en tímabilið er samt sem áður ekki búið. Drengirnir leggja land undir fót og ferðast til Svíþjóðar í byrjun maí til að taka þátt í móti þar.