Fréttir

Körfubolti | 15. febrúar 2005

Fréttir af 9. flokki karla. 3 sigrar í 3 leikjum.

9.flokkur karla

Laugardaginn 12. febrúar keppti 9.fl.kk. í sinni 3 turneringu á þessu tímabili.  Drengirnir fóru eldsnemma á laugardagsmorgni með rútu norður á Sauðárkrók.  Eftir 5 tíma akstur var liðið komið norður. 
Fyrsti leikurinn í mótinu var gegn Þór Þorlákshöfn, en drengirnir slógu þá einmitt út í 8 liða úrslitum bikarkeppninnar.  Líkt og í bikarleiknum var Keflavík með mikla yfirburði í leiknum.  Staðan í hálfleik var 36 – 14, ljóst var hvert stefndi.  Lokatölur urðu 53 – 30 keflavík í vil. 
Næsti leikur var gegn Hamar/Selfoss, en þeir spiluðu einmitt í A riðli í síðustu turneringu.  Keflvíkingar tóku leikinn strax í sínar hendur og leiddu í hálfleik 30 – 15.  Lokatölur í þessum leik urðu 53 – 40 Keflavík í vil. 
Síðasti leikur Keflvíkinga í mótinu var gegn gestgjöfunum og var þetta einnig leikur um hvort liðið kæmist upp í A riðil.  Jafnræði var með liðunum fyrstu mínúturnar en svo náði Keflavík góðri rispu sem skilaði 10 stiga forskoti í hálfleik 30 – 20.  Í seinni hálfleik hélt Keflavík áfram að auka forskot sitt og náði mest 19 stiga forskoti en Tindastóll rétti sinn hlut í lokin með því að skora 9 síðustu stigin, og endaði leikurinn 49 – 39 Keflavík í vil.

Allt liðið var að spila vel þennan laugardag og komu allir 12 leikmenn liðsins við sögu í öllum leikjunum. 

Stigaskor leikmanna Keflavíkur samtals úr leikjunum var svona:

Sigfús Árnason   43 stig
Alfreð Elíasson  33 stig
Guðmundur Gunnarsson 28 stig
Júlíus Pálsson   20 stig
Almar Guðbrandsson  10 stig
Sindri Björnsson    6 stig
Jón Þór Gylfason    5 stig
Ingimundur Guðjónsson   4 stig
Guðmann Lúðvíksson    3 stig
Gunnlaugur Ásgrímsson   2 stig

Aðrir komust ekki á blað að þessu sinni.

Þjálfari strákana er Elentínus Margeirsson.

Sem sagt frábær árangur hjá drengjunum og vonandi að meira sé í vændum!!