Fréttir

Körfubolti | 8. maí 2004

Fréttir af karla- og kvennaliðum Keflavíkur

Það er yfirlýst markmið stjórnar Keflavíkur að eiga lið í allra fremstu röð ár hvert, bæði meðal karla og kvenna. Til að svo geti orðið þarf margt að ganga upp, m.a. þarf að vera til staðar öflug stjórn, góðir þjálfarar og góð liðsheild skipuð hæfileikaríkum og baráttuglöðum leikmönnum. Þótt enn sé langt þar til næsta leiktíð hefst, þá bendir nú þegar flest til að okkar lið verði afar sterk, eftir sem áður.

Til að byrja með er ljóst að stjórnin verður vel mönnuð, ef að líkum lætur. Vitanlega á eftir að fara fram stjórnarkjör á aðalfundi n.k. þriðjudag, en útlitið er bjart. Hermann Helgason mun bjóða sig fram til formanns, en Hrannar lætur af störfum. Líklegast verða 9 manns kjörnir í stjórn og 5 til viðbótar í varastjórn. Af þessum 14 eru 4 formenn, núverandi og fyrrverandi, sem gefur til kynna að reynslan verður mikil í stjórninni. Í framhaldi verða skipuð 6 manna unglingaráð og 4 manna kvennaráð, svo alls verða líklega 24 í stjórnurnarstörfum deildarinnar sem verður að teljast gott, sérstaklega þegar haft er í huga að flestir hafa mikla reynslu af slíkum störfum og sinna þeim vel.

Karlaliðið verður þjálfað af Sigurði Ingimundarsyni og nú þegar er ljóst að leikmannahópurinn verður afar þéttur, nánast óbreyttur frá því í fyrra. Allt útlit er fyrir að eftirtaldir muni leika fyrir félagið á komandi leiktíð: Gunnar E, Jonni, Maggi, Sverrir Þór, Arnar Freyr, Halldór, Hjörtur, Davíð, Gunni Stef, Sævar og Jón Gauti. Sem sagt, nánast sami hópur og hóf tímabilið fyrir ári síðan. Fannar verður spurningamerki fram eftir sumri vegna þess að hann vill láta reyna á það hvort hann komist í atvinnumensku. Auk þessarra er von á frekari liðsstyrk, ekki síst undir körfunum.

Kvennaliðið verður þjálfað af Sverri Þór Sverrissyni. Leikmannahópurinn er breiður og sterkur og þar má nú þegar nefna þessar: Anna María, Birna, Rannveig, Svava, Marín Rós, María Ben, Bryndís Guðmunds, Bára Braga, Halldóra og Anna María Ævars. Auk þeirra eru fleiri unglingalandsliðsstúlkur sem banka á dyrnar og jafnvel er frekari liðsstyrkur væntanlegur til félagsins áður en hausta tekur. Þær nöfnur Erla Þorsteinsdóttir og Erla Reynisdóttir hverfa á braut, þar sem þær hafa ákveðið að leika ekki með Keflavík í vetur. Báðar eiga farsælan feril að baki hjá félaginu og erum við þeim þakklát fyrir þeirra framlag til árangurs liðinna ára og bjóðum þær velkomnar aftur við fyrsta tækifæri.