Fréttir af meistaraflokkum karla og kvenna
Nýafstaðnir eru fundir stjórnar, þjálfara og leikmanna meistaraflokka karla og kvenna. Niðurstöður þeirra funda eru ánægjulegar, því mikill hugur er í báðum liðum. Þjálfarar og leikmenn eru áhugasamir og metnaðarfullir og stefna bæði liðin á keppni á erlendri grundu á komandi leiktíð. Stúlkurnar munu leita sér að verðugu verkefni í haust, líklegast reyna að fara í keppnisferð rétt áður en leiktíðin hefst, en karlaliðið mun aftur taka þátt í Bikarkeppni Evrópu, líkt og í fyrra. Vegna þessara metnaðar- og kostaðarsömu þátttöku á erlendum vettvangi munu fljótlega hefjast fjáraflanir á vegum deildarinnar. Einnig hefur verið ákveðið að taka þátt í körfuboltakeppni á Landsmóti UMFÍ á Sauðarkróki í sumar.
Leikmannamál eru í mjög góðu horfi, eins og áður hefur verið greint frá, en Kanamál munu verða skoðuð í rólegheitunum og líklega ekki skýrast fyrr en síðla sumars eða snemma næsta haust.