Fréttir

Körfubolti | 28. nóvember 2005

Fréttir af mfl kvenna

Erla Þorsteinsdóttir sem skrapp eitt tímabil yfir til Grindavíkur verður orðin lögleg með liðinu í næsta leik. Það er þar ekki að fara mörgum orðum um hversu mikill styrkur það er að fá Erlu aftur inn í hópinn.

Sæunn Sæmundsdóttir sem kom yfir frá Njarðvík fyrir nokkru verður orðin lögleg með liðunu á móti Haukum 7.des.

Reshea Bristol meiddist lítillega í upphitun á móti KR í síðasta leik, er öll að koma til og verur orðin klár í næsta leik.

Keflavík hefur verið á góðu róli í síðustu leikjum og unnið tvo síðustu með miklum mun. Keflavík sigraði ÍS í undanúrslitum Powerade-bikarnum og mætir Haukum í úrslitaleik í Digranesi 10. des. Leikinn sigraði Keflavík með 25 stiga mun, 78-50. Stigaskorið dreifist mjög jafnt í þeim leik. Reshea skoraði 25 stig, Anna María 14, Birna 13, María Ben 8, Rannveig 7, Bryndís 5, og Kara, Hrönn og Svava 2 stig hvor.

Tölfræði_Keflavík-ÍS

Keflavík sigraði KR í síðasta leik í Iceland Express-deildinni með miklum yfirburðum, 40-104. Algjöra einstefnu var um að ræða í þeim leik eins og tölur bera með sér. Reshea lék ekki með í þeim leik vegna smávægilegra meiðsla sem hún var fyrir í upphitun. Yngri stelpurnar fengu að spila mikið í þeim leik og komu vel út. Stigahæst var Birna V með 22 stig. Önnur stig skorðu eftirfarandi: Bryndís 20 stig, María Ben 14 stig, Halldóra 13 stig, Svava 11, Ingibjörg 10 stig, Kara, Bára, Anna María með 4 stig og Rannveig 2 stig

Tölfræði_KR-Keflavík

Staðan í Iceland_Express-deild.

1. UMFG                       6 leikir    12 stig
2. Keflavík                     7  leikir   10  stig
3. Haukar                      5   leikir    8  stig
4. ÍS                              6   leikir    4  stig
5. Breiðablik                  7   leikir    2  stig
6. KR                            7   leikir    2  stig