Fréttir frá Evrópu: Dijon í miðherjavandræðum
Við greindum frá því fyrir skömmu að næstu andstæðingar okkar í Bikarkepni Evrópu, Dijon frá Frakklandi hefðu lent í vandræðum með miðherjann sinn og fengu til reynslu hinn litríka Lee Benson. Eitthvað hefur sú tilraunamennska gengið illa því hvergi er minnst á árangur af hans heimsókn til Dijon. Hins vegar eru greinileg miðherjavandræði hjá Dijon sem hefur nú tapað 3 leikjum í röð (!!!) - í gær gegn Chloet á útivelli 93-91.
Þeir hafa dottið úr toppbaráttunni og niður í 8. sætið á nokkrum vikum. Leikstjórnandinn þeirra, Belgíumaðurinn Dimitri Lauwers, er meiddur og svo hefur miðherjinn stóri, Davenport, ekki verið að standa sig. Nú hafa þeir fengið til reynslu Hondre Brewer sem er 213 og 130 kg. Sá er 23ja ára frá Notre Dame háskólanum í Bandaríkjunum og lék í fyrra í Króatíu með 11 stig og 7 fráköst í leik. Nú vilja Dijon-menn athuga hvort Brewer sé betri en Davenport, því ekki eru menn sáttir með hann. Hann verður til reynslu í nokkra daga og svo verður valið á milli þeirra.
Hins vegar eru hinar aðalstjörnurnar, Rowan Barrett og Vakhtang Natsvlishvili, að standa sig, t.d. skoraði Barret 34 stig í síðasta leik og var með 5 af 7 í 3ja og Natsv... var með 24 stig og 14 fráköst.
Til gamans má geta þess að Toulon vann mikilvægan útisigur gegn Nancy 71-77 og heldur sér í 12. sætinu. Portúgölsku félagar okkar úr Ovarense fara enn á kostum og hafa endurheimt efsta sæti deildarinnar með 12 sigra í 16 leikjum. Skytturnar stóðu sig vel í gær, 11 af 23 í 3ja. Madeira er hins vegar aftur komið í meiðslavandræði og á erfiðan útileik fyrir höndum í dag.
Frakkinn Paccelis Morlendes er 22ja ára og kemur upp úr yngri flokkum Dijon. Hann skorar um 12 stig á leik og gerði einmitt 12 stig í leiknum gegn Chloet um helging, en myndin er úr þeim leik.