Fréttir frá Frakklandi
Þeir félagar Nick og Tony léku gegn hvorum öðrum á miðvikudaginn síðastliðinn í frönsku ProA deildinni. Liðin hans Tony, Brest, hafði betur í þeim leik 88-78. Tony var með 4 stig en Nick náði ekki að skora í leiknum.
Nick átti hins vegar stórleik í næstu umferð sem fór fram í gær, laugardag, en þá skoraði hann 23 stig og tók 10 fráköst, þar af 7 sóknarfráköst. Liðið hans, Reims, vann þá Chalon / Saone 83-73. Greinilegt að kallinn er eitthvað að hressast þarna í Frakklandi.
Tony skoraði hins vegar 11 stig í tapleik liðs síns í gær, en það tapaði stórt gegn Cholet, 100-82.
Brest er í 13 sæti í frönsku Pro A deildinni með 5 stig eftir 4 leiki en Reims er í 15 sæti af 18 liðum, með 4 stig eftir 3 leiki.