Fréttir

Körfubolti | 14. desember 2003

Fréttir frá Portúgal: Ovarense fékk skell, en CAB Madeira náði mikilvægum sigri

Mótherjar okkar í næstu viku, Ovarense og Madeira, léku báðir í TMN deildinni portúgölsku um helgina. Í gær fór Ovarense í heimsókn til Olivarense (sem leikuri einnig í Bikarkeppni Evrópu, í A-riðli Vesturdeildar) og tapaði stórt. Stærð ósigursins hlýtur að vera áfall fyrir Ovarense sem datt þar með í fyrsta sinn úr toppsæti deildarinar í vetur. Aðeins Morales, sá spænski, átti góðan dag með 20 stig, en annars náði liðið sér ekki á strik, t.d. skoruðu Kanarnir Wilson og Jones aðeins 7 stig hvor.  Leikurinn endaði 89-65.

Madeiringar eru hins vegar að sækja í sig veðrið eftir slakt gengi og meiðsli upp á síðkastið. Þeir unnu Aveiro á heimavelli með 13 stigum, 99-86 og hífðu sig upp í 8-11 sætið. Stóru strákarnir, Leeks og Johnston, voru sterkir með 23 og 22 stig og 11 og 9 fráköst. Pedro Nuno lék aftur með eftir langt meiðslahlé og skoraði 12 stig. Stórskyttan spænska, Marcos, var á leikskýrslu en kom ekki við sögu frekar en gegn Keflavík.

Næsti leikir beggja þessara liða er gegn Keflavík, fyrst Ovarense á þriðjudaginn og svo Madeira á fimmtudaginn.