Fréttir

Körfubolti | 22. mars 2005

Fréttir og myndir af 7. flokki

7.fl.karla, vormót í Keflavík.

 

Helgina 19.-20. mars lék 7. flokkur karla, B riðli í íþróttahúsinu í Keflavík.

Léku drengirnir tvo leiki á laugardag og tvo á sunnudag og gekk bara mjög vel.

Sextán drengir tóku þátt fyrir Keflavík og voru nokkrir þeirra sem skiptu leikjum á milli sín, því aðeins er hægt að vera með tólf á skýrslu.

Allir tólf sem spiluðu hvern leik léku mjög vel og fengu drengir sem ekki hafa spilað mikið í vetur að spila nokkuð mikið.

 

Leikirnir hjá okkar mönnum fóru þannig:

Keflavík 33 – Þór Þ 29

Keflavík 39 – Reynir S 22

Keflavík 33 – Kr 30

Keflavík 56 – Ármann/Þróttur 32

 

Stig:

Lúðvik 35, Eðvald 32, Árni 24, Magnús 16, Kristján 15, Elvar 10, Viktor 7, Trausti 6, Ármann 5, Svanberg 4, Emil 3, Guðjón 2, Gísli 2.

 

Við strákarnir viljum þakka öllum þeim sem mættu á ritaraborð og að dæma

kærlega vel fyrir.

 

Kveðja Gísli þjálfari og strákarnir í 7.flokk.

 

Myndir af strákunum í 7. flokki ásamt þjálfurum.