Fréttir úr æfingaferð mfl. kvenna
Við sögðu frá því um daginn að stelpurnar töpuðu fyrsta æfinga leik sínum fyrir Probuild Lions 75-73 í ferð sinni til Hollands. Næst mættu þær svo meisturunum frá Luxemburg á laugardeginum. Það var hörku leikur, en Musel Pikes eins og þær heita sigruðu leikinn 73-78. Stigin í þeim leik skoruðu Reshea 19, Birna 18, Ranveig 13, Bryndís Guðmunds 10, María Ben 6, Anna María 5 og Margrét Kara 2 stig.
Eftir þann leik fengu þær aðeins klukkutíma til að jafna sig og spila svo við meistarana frá Hollandi, Den Helder. Keflavík náði að halda í þær í fyrir hlé, sprungu í restina á leiknum enda orðnar lúnar. Staðan í hálfleik 37-33 en endaði 71-55 fyrir Den Helder. Stigin skoruðu þær Birna 15, Anna María 10, Reshea 8, María Ben 6, Rannveig 5, Ingibjörg 4, Halldóra 4 og Bára 3 stig. Það ber að nefna að kaninn hjá þeim var ein sú breiðasta sem stelpurnar hafa séð, en samt gríðalega snögg! Alda Leif sem spilar með þeim Hollensku átti einnig frábæran leik og á greinilega spila stórt hlutverk með þeim í vetur.
Á næstunni verður birt hér á heimasíðunni ferðasagan og myndasyrpa úr ferðinni.