Fréttir

Körfubolti | 26. mars 2005

Fríar sætaferðir í Seljaskóla á fjórða leikinn.

Fjölmargir stuðningsmenn Keflavíkur mættu í Seljaskóla á fyrsta útileik okkar á móti ÍR í undanúrslitum.  Stemmningin á leiknum var hreint mögnuð, enda húsið fullt. Stuðningur eins og var í þessum leik skiptir leikmenn miklu máli. Í Olíssport eftir leikinn var talað um góðan stuðning áhorfenda Keflavíkur og sagði Sverrir Þór sem var þar í viðtali að stuðningsmenn Keflavíkur væru sennilega besta stuðningssveit íþróttaliðs á Íslandi.  Ekki ónýtt hól þar og hvatning til að gera enn betur. SpKef bauð upp á fríar sætaferðir á leikinn og voru fjölmargir sem nýttu sér það.

Næsti leikur okkar í Seljaskóla er á þriðjudag kl. 19.15 og hefur Spkef ákveðið að bjóða upp á fríar sætaferðir á þann leik líka. Rútur frá Sbk verða við Sunnubraut kl .17.30. Við hvetjum fólk til að nýta sér þetta góða boð og fjölmenna á þennan mikilvæga leik.

Hluti stuðningsmanna Keflavíkur í Seljaskóla á mánudaginn síðasta.