Frítt inn á leikinn gegn Ármanni á morgun
Ekki er von á jöfnum og spennandi leik á morgun þegar Ármenningar mæta í Sláturhúsið í seinni umferð 16-liða úrslita í Hópbílakeppninni. Keflavík vann fyrri leikinn með rúmlega 70 stiga mun og má gera ráð fyrir að það verði frekar tilþrifin sem gleðja augað en spennan.
Sigurður þjálfari er þó vís til með setja strákunum eitthvað sérstakt fyrir, t.d. að reyna að skora ákveðinn fjölda stiga, eða að reyna að halda andstæðingunum frá því að ná of mörgum skotum. Því gæti verið eitt eða annað sem verður gaman að horfa á.
Stjórn körfuknattleiksdeildarinnar býður bæjarbúum að kíkja á leikinn sér að kostnaðarlausu . . .