Fréttir

Körfubolti | 1. janúar 2004

"From Prison to the Pros" kallast ævisaga Lee Benson sem er til reynslu hjá Dijon

Við munum aðeins fylgjast með stórliði Dijon á næstu dögum og vikum. Þeir eru okkar næstu andstæðingar í Bikarkeppni Evrópu og rétt að gefa þeim auga. Helstu stjörnur liðsins eru:

  • Kandamaðurinn Rowan Barret sem er ástamt Steve Nash einn besti maðurinn í kanadíska landsliðinu (1,97, framherji, 19 stig á leik)
  • Georgíumaðurinn Vakhtang Natsvlishvili sem er yfirburðamaður síns lands og mikil hetja (27 ára, 2,05, framherji, 14 stig, 7 fráköst á leik)
  • Bandaríkjamaðurinn Derrick Davenport, miðherji, 25 ára, 2,09m, 11 stig, 7 fráköst
  • Paccelis Morlende, franskur, 22ja ára, 1,88 (minnsti maður liðsins), þykir gríðarlegt efni, frábær skytta, 12 stig, 5 stoðsendingar á leik

Og svo eru fleiri góðir. . . .

En athyglisvert er að þeir eru ekki alveg sáttir við miðherjann sinn, Davenport, og því hafa þeir ráðið til liðsins til reynslu afar merkilegan mann sem heitir Lee Benson. Saga þessa drengs er hreint mögnuð og er rætt um að hún verði gerð að bíómynd á næsta ári og kallist "From Prison to the Pros", hvorki meira né minna. Benson er 28 ára og sat í fangelsi í rúm 8 ár (!!!) fyrir eiturlyfjamál. Að því loknu reyndi hann fyrir sér í alvöru körfu, fór í skóla (í 2. deild) og skoraði 35 stig og hirti 15 fráköst að meðaltali. Svo fór hann í draftið 2002, þá orðinn 28 ára, en var ekki valinn. Síðan þá hefur hann verið t.d. í Grikklandi, Kýpur og Ísrael og skilað alvöru tölum, greinilega svaka player. Hér eru tveir góðir línkar:

Greinilega athyglisverður kappi. En það sem Heimasíðunni finnst kannski merkilegast eru starfsaðferðir franska liðsins. Á heimasíðunnu má lesa að framundan sé tveggja vikna tímabil þar sem Benson æfir með liðinu og keppir eitthvað, en líka Davenport. Þeir eiga semsagt að keppa innbyrðis fyrir þjálfara og stjórn félagsins sem síðan taka ákvörðun um hvorum skuli halda. Eflaust sérstakt andrúmsloftið þarna . . . .