Fréttir

Körfubolti | 20. apríl 2006

Fyrirlestur Sarunas á RadissonSAS Hótelinu 21. apríl

Fyrirlestur Sarunas Marciulionis á RadissonSAS Hótelinu 21. apríl 2006
 
KKÍ stendur fyrir fundi þar sem Sarunas Marciulionis, heiðursgestur á lokahófi KKÍ mun kynna Körfuboltaakademíu Sarunas Marciulionis í Litháen.
Fundurinn er öllum opinn og hefst kl. 16.00 föstudaginn 21. apríl 2006 á RadissonSAS Hótelinu (áður Hótel Sögu).

Dagskrá fundarins:

1. Opnun - Ólafur Rafnsson, formaður KKÍ
2. Kynning á Íþróttaakademíunni í Keflavík - Geir Sveinsson, framkvæmdastjóri Akademíunnar
3. Kynning á Körfuknattleiksakademíu Sarunas Marciulionis - Sarunas Marciulionis.
4. Pallborðsumræður þar sem fulltrúar annarra sérsambanda ásamt fyrirlesurum munu ræða og kynna það starf sem er í gangi og hvað er framundan í tengslum við hinar ýmsu íþróttaakademíur hér á landi.

Búast má við skemmtilegum umræðum og eru fundargestir hvattir til að taka þátt í þeim af fremsta megni.