Fréttir

Karfa: Konur | 30. janúar 2011

Fyrsti leikur Keflavíkurstúlkna í A riðil í dag

Keflavíkurstúlkur fá góða heimsókn í Toyota Höllina í dag, en þá mæta KR-stúlkur til leiks. Þetta er fyrsti leikur liðanna eftir að deildinni var skipt upp í A og B riðla. Búast má við hörkuleik, en KR-stúlkur hafa verið að sækja í sig veðrið að undanförnu og ætla að öllum líkindum ekki að láta slátra sér eins og þær gerðu í síðasta leik liðanna hérna í Keflavík, en sá leikur endaði 92-49.

Leikurinn hefst klukkan 19:15 og allir hvattir til að láta sjá sig!

Áfram Keflavík!

 


Bryndís Guðmundsdóttir verður í eldlínunni í kvöld.