Fyrsti sigur íslensks félagsliðs á frönsku liði í 14 tilraunum í 39 ár!
Sigurinn gegn Hyeres-Toulon var merkilegur fyrir margra hluta sakir. Keflvíkingum þótti t.d afar merkilegt að liðið skyldi hafa getu til að snúa nánast vonlausri stöðu upp í sigur. En það er fleira merkilegt við þennan sigur. Síðustu 39 ár, allt frá 1964, hafa íslensk félagslið mætt frönskum félagsliðum í hinum ýmsu Evrópukeppnum, alls 14 sinnum. Og alltaf hafa frönsku liðin unnið. Alltaf . . þar til nú! Sigurinn gegn Toulon var nefnilega fyrsti sigur íslensks félagsliðs á frönsku liði í Evrópukeppni. Til hamingju með þann árangur, Keflvíkingar. Við skulum skoða úrslit hinna íslensk-frönsku viðureignanna:
1964
ÍR – ASVEL Lyons (Fra.) 42-74
ASVEL Lyons – ÍR Lyon 84-19
1979
KR – Caen (Fra.) 84-104
Caen (Fra) – KR 88-74
1989
Pau-Orthez (Fra.) - KR 97-79
KR - Pau-Orthez 75-102
1992
Valur – Lyon (Fra.) 74-109
Lyon – Valur 128-88
1993
Haukar – Dijon (Fra.) 83-90
Dijon – Haukar 118-65
1999
ÍRB – Nancy (Fra.) 67-101
Nancy – ÍRB 90-73
2003
Toulon (Fra.) - Keflavík 107-91
Keflavík - Toulon (Fra.) 82-78