Fréttir

Körfubolti | 26. október 2003

Fyrsti stórleikur vetrarins á mánudag þegar Keflavík fer í heimsókn til Njarðvíkur

Jæja kæru áhugamenn um körfubolta, nú  er komið að alvöru leik, þeim fyrsta í vetur. Ef það er eitthvað öruggt í "körfubolta" - lífinu, þá er það að leikur Keflvíkur og Njarðvíkur verður góð skemmtun. Rígurinn og metnaðurinn er ávallt til staðar, og oftar en ekki eru þessi félög þau bestu á landinu. Um þessar mundir er þau líklega tvö af þremur bestu, ásamt Grindavík. Skammt undan eru þó mörg félög eins og t.d. Tindastóll, Snæfell, Haukar og KR. En eins og menn vita hafa Keflavík (6) og Njarðvík (10) unnið 16 af síðustu 20 Íslandameistaratitlum, þannig að það telst reyndar til tíðinda ef einhver annar verður meistari.

 

Nú í vetur hafa bæði félög byrjað ágætlega. Keflavík hefur þegar nokkra minni titla undir beltinu, Valsmeistari, Reykjanesmeistari og Meistari Mestaranna. Í Intersport deildinni eru að baka tveir sigrar og eitt tap. Njarðvíkurliðið átti kannski ekki jafngott æfingatímabil, en liðið hefur hins vegar styrkst verulega með endurkomu Bretons Birmingham, þannig að grannar vorir eru til alls líklegir. Þeir unnu KR á dögunum og síðan Þór á útivelli. Sumir segja að Njarðvík hafi besta byrjunarliðið í deildinni, því Friðrik og Páll eru afar sterkir undir körfunum.

 

Okkar menn hafa verið að þróa leik sinn upp á síðkastið. Meira er um inside-leik en oft áður, en eins og áður er hraðinn, pressuvörnin og langskotin aðall liðsins. Breiddin er góð og liðið í fínu formi. Enn sem fyrr er þó hugarfarið aðal atriðið, því án baráttuviljans verður varnarleikurinn slakur og þá er voðinn vís, eins og sást gegn ÍR. Aldrei hefur þó baráttuviljann skort gegn Njarðvík og má því gera ráð fyrir rosaleik að vanda á mánudaginn.