Fyrstu fjölliðamótin fara fram um helgina
Fjölmargir leikir eru á dagskrá í körfunni um helgina þegar fyrstu fjölliðamót yngri flokka á Íslandsmótinu hefjast á morgun, laugardag.
Ekkert mótanna fer fram á heimavelli í TM höllinni þessa helgi enda verður K-dagurinn haldinn þar stórkostlega hátíðlegur á morgun.
Þar gefst öllum bæjarbúum tækifæri á að kynna sér þær fjölmörgu íþróttagreinar sem í boði eru á vegum Keflavíkur, Íþrótta og Ungmennafélags á komandi vetri og ljóst að stemmingin verður þétt & skemmtileg á Sunnubrautinni á morgun.
Flokkarnir sem halda í víking um helgina og ætla að halda uppi heiðri körfuknattleiksdeildarinnar eru Minnibolti 11. ára stúlkna sem þreytir frumraun sína á Íslandsmótinu á Flúðum, 7. flokkur drengja mætir í kennslustund í Íþróttahúsi Kennaraháskólans, 9. flokkur stúlkna leikur í Grindavík og 10. flokkur drengja leikur í Ljónagryfjunni alræmdu í Njarðvík.
Öll Keflavíkurliðin hefja leik í A-riðli samkvæmt árangri þessara flokka á síðustu leiktíð
Dagskrá fjölliðamóta helgarinnar, 1. umferð:
Minnibolti 11. ára stúlkna leikur á Flúðum í A-riðli. Leikjadagskrá helgarinnar
7. flokkur drengja leikur í íþróttahúsi Kennaraháskólans í A-riðli. Leikjadagskrá helgarinnar
9. flokkur stúlkna leikur í Grindavík í A-riðli. Leikjadagskrá helgarinnar
10. flokkur drengja leikur í Njarðvík í A-riðli. Leikjadagskrá helgarinnar
Við þetta má að lokum bæta ein herópi í nestiskörfuna:
ÁFRAM KEFLAVÍK