Fréttir

Karfa: Yngri flokkar | 2. október 2005

Fyrstu mótin

Nú um helgina fóru fram fyrstu leikirnir í íslandsmótum yngriflokka. 

9.fl.karla fór í Njarðvík og hóf tímabilið í B-riðli. Þeir voru í fyrra að fara upp og niður á milli B og C riðils. Mihajlo Micic hinn nýráðni yngriflokkaþjálfari okkar stimplaði sig nokkuð vel inn þar sem mikil batamerki voru á leik drengjanna. Þeir unn fyrstu 4 leikina á móti Snæfelli, Njarðvík, KR og Þór Akureyr. Úrslitaleikinn um sæti í A-riðli léku þeir við Skallagrímsmenn sem einnig höfðu unnið 4 leiki.  Liðin skiptust á að hafa forystu allan og endaði leikurinn síðan með tveggja stiga sigri Skallagríms.

8. flokkur kvenna lék sína leiki í A-riðli hér í Keflavík undir stjórn Gísla Gísla. Þar var um nokkuð jafnt mót að ræða og fór ekkert lið heim sigurlaust úr mótinu. þó fór svo að Keflavík féll í B-riðil,en stúlkurnar unnu 1 leik en töpuðu 3  Þær taka sig á í næsta móti og setja stefnuna beint upp í A-riðil á ný.

7.flokkur kvenna fór norður á Sauðárkrók á laugardag (1.okt.)  sem Keflavík -b í 8.flokki og lék 2 leiki í C-riðli 8.flokks. þær unnu báða leikina og færast því upp um riðil í næsta móti. Þær unnu Snæfell með 1 stigi eftir framlengingu, þar sem Telma tók víti að leiktíma loknum og setti seinna vítið niður og kláraði þann leik. Leikur þeirra við Tindastól var mun léttari og vannst nokkuð örugglega.

Áfram Keflavík.