Fréttir

Gamlar kempur mæta á parketið
Karfa: Karlar | 14. nóvember 2012

Gamlar kempur mæta á parketið

Liðsmenn Keflavíkur B mæta á parketið í kvöld eftir mismikla pásu og spila við lið ÍG í bikarkeppni KKÍ. Leikurinn hefst kl 19.15 og gera má ráð fyrir miklu fjöri.

Í liði Keflavíkur B eru leikmenn eins og Guðjón Skúlason, Falur Harðarsson, Sigurður Ingimundarsson, Albert Óskarsson, Gunnar Einarsson, Sverri Þór Sverrisson ásamt fleiri gömlum kempum.

Heimasíðan hvetur alla Keflvíkinga til að láta sjá sig annað hvort í Toyota-höllinni eða í Grindavík þar sem stelpurnar leika í dominos-deildinni.

 

Mynd fengin að láni frá vef Körfuknattleikssambands Íslands (kki.is)