Gamlir félagar í Frakklandi
Á miðvikudaginn síðastliðinn hófst Pro A deildin í Frakklandi. Tveir fyrrum leikmenn Keflavíkur, þeir Nick Bradford og Anthony Glover, leika í þessari deild eins og fram hefur komið. Það er skemmst frá því að segja að frumraunum þeirra lauk með ósigri hjá þeirra liðum.
Liðið hans Nick, Reims, tapaði á útivelli fyrir Pau-Orthez og skoraði Nick 2 stig á 15 mínútum.
Liðið hans Tony, Brest, tapaði á heimavelli fyrir Le Mans 82-92. Tony skoraði 13 stig í leiknum og tók auk þess 10 fráköst. Hann var með 55,6% skotnýtingu í leiknum.
Næstu leikir hjá þeim félögum er á morgun, laugardag, og munum við hér á heimasíðunni fylgjast með og segja fréttir af úrslitum í þeim leikjum.