Fréttir

Körfubolti | 3. maí 2004

Gerðar voru tvær mikilvægar breytingar varðandi útlendinga í úrvalsdeild á KKÍ-þinginu á Selfossi um helgina

Eftir mikla umræðu um útlendingamál og launaþak allan nýliðinn vetur gafst stjórnarmönnum körfuboltafélaga tækifæri á að færa til betri vegar það sem illa þótti takast í fyrra. Tvær breytingar voru gerðar sem eflaust munu slá á helstu gagnrýnisraddir varðandi útlendingamál.

  1. Nú er aðeins heimilt að hafa að hámarki tvo Kana í liði
  2. Nú er ekki heimilt að bæta leikmönnum eftir 5. janúar, (þó skipta megi út Kana, líkt og lengi hefur tíðkast)
  • Menn eru almennt á því að launaþakið geri gagn og því verður áframhald á launaþakinu sem er 500 þús, með þeirri breytingu þó, að aðeins má að hámarki nota 300 þús fyrir erlenda leikmenn. Mikilvægt er að menn geri sér grein fyrir því að erlendir leikmenn teljast allir nema Bosmann-leikmenn sem hafa jafnan rétt og Íslendingar.
  • Í fyrstu deild karla verður nú liðið í efsta sæti sjálfkrafa “deildarmeistari” og ávinnur sér rétt á að leika í úrvalsdeild. Liðin í 2. – 5. sæti leika um hitt lausa sætið í úrvalsdeild.
  • Í unglingaflokki kvenna verður horfið frá fjölliðamóti og tekin upp deildarkeppni, líkt og í unglingaflokki karla. Einnig er leiktímanum breytt í 4 x 10 mín.

Auk þessa voru margar aðrar tillögur samþykktar eða felldar eins og sjá má á heimasíðu KKÍ, www.kki.is.

Umsjón þingsins í höndum heimamanna og hafði Gylfi Þorkelsson veg og vanda af framkvæmdinni. Gylfa eru þökkuð góð störf og góðar móttökur. Þingið þótti heppnast vel og fór vel á með þingfulltrúum sem ræddu málin vel og lengi á laugardeginum og greiddu síðan atkvæði á sunnudeginum. Á laugardagskvöldið var síðan glatt á hjalla yfir hátíðarkvöldverði, þar sem meðal annars fór fram spennandi spurningakeppni milli fráfarandi og nýráðins framkvæmdastjóra.