Glæsilegir vinningar í HAPPDRÆTTI körfuknattleiksdeildarinnar
Eins og undanfarin ár mun körfuknattleiksdeild Keflavíkur halda happdrætti fyrir þessi jól. Vinningarnir eru frá SAMHÆFNI og þykja einkar veglegir. Fyrsti vinningur er fartölva frá Hewlett Packard, næstu fjórir vinningar eru digital myndavélar og síðan eru fimm flottir “fjölnota” prentarar (prentarar sem eru einnig skannar). Heildarverðmæti vinninga er yfir 600 þús. krónur og útgefnir miðar eru eitt þúsund. Verð happdrættismiða er 1.000 kr.
Leikmenn og ýmsir aðstandendur körfunnar munu selja miða á næstu dögum og vikum og vonumst við eftir góðum viðtökum frá bæjarbúum.