Fréttir

Körfubolti | 30. mars 2004

Glæsilegri rimmu lokið - Sumarfrí var ekki á dagskránni hjá Keflavíkurdrengjum í kvöld!

Sjálfstraust Keflvíkinga eftir stórsigurinn á sunnudaginn kom berlega í ljós á síðustu mínútum leiksins í kvöld. Eftir mikinn barning og fjörugan háspennuleik náðu Keflvíkingar tökum á leiknum snemma í þriðja leikhluta eftir þrjá þrista frá Nick og létu forystuna ekki af hendi eftir það. Niðurstaðan var 101-89 sigur okkar mann sem skilaði þeim í úrslitaviðureignina gegn Snæfelli, en hún hefst á fimmtudaginn. Leikmenn, þjálfarar og stuðningsmenn eiga allir heiður og hrós skilið fyrir frábæra frammistöðu í Röstinni í kvöld og óskum við þeim til hamingju með sigurinn.

Grindvíkingum þökkum við fyrir frábæra rimmu sem fór í fimm leiki og bauð upp á flottan körfubolta og frábæra stemmningu.

Leikurinn byrjaði með látum og skiptust liðin á körfum fram í annan leikhluta. En Grindavík náði góðum kafla, ekki síst í kjölfar þriggja þrista frá Jones. Staðan var orðin 38-26 og ekki blés byrlega fyrir okkar mönnum. En Guðjón og Falur tóku leikhlé og róuðu okkar menn og stöppuðu í þá stálinu. Eftir það fór Keflavíkurliðið í gang. 11-0 kafli eftir góða vörn og hraðupphlaup kom muninum í 1 stig, 38-37, og eftir það var leikurinn í járnum þar til Keflavík tók tökin á vellinum í upphafi fjórða leikhluta.

Keflavíkurliðið lék afar vel þegar á reyndi, lokaði vörninni og nýtti hraðan afar vel. Arnar Freyr keyrði látlaust upp hraðan og stýrði leiknum mjög vel allan tímann, hann átti líka tilþrif leiksins, fyrst með frábærri “alley-oop” sendingu á Nick sem tróð viðstöðulaust og síðan með því að taka ruðning gegn Jones örfáum sekúndum seinna. Arnar átti margar fínar sendingar í leiknum og átti alls 10 stoðsendingar sem er frábært hjá leikstjórnandanum unga.

Maður leiksins var þó að öðrum ólöstuðum Nick Bradford. Hann er leiðtogi liðsins og barði aðra liðsmenn áfram þegar hik kom á leikinn.  31 stig, 9 fráköst, 8 stoðsendingar, 4 stolnir boltar og 4 varin skot eru ágætis afköst á einni kvöldstund. Derrck (23 st, 11 frák, 6 stoðs og 5 varin) var sömuleiðs góður og svo átti Fannar algeran stjörnuleik, setti 25 stig og reif niður 11 fráköst, hann nýtti færin sín afar vel og skoraði grimmt og stöðugt allan tímann, setti sérlega mikilvægar körfur í lokin.


Fannar treður eftir góða sendingu frá Arnari

Jonni og Sverrir áttu frábærar innkomur, Jonni var duglegur í fráköstunum, hirti 9 slík á 14 mínútum, og Sverrir setti tvo feita þrista í fyrri hálfleik. Maggi lék vel og var síógnandi, skoraði góðar körfur og stal mikilvægum boltum. Gunnar E hafði hægt um sig, en mun eflaust láta meira að sér kveða í framhaldinu.

Hjá Grindavík voru Lewis og Jones allt í öllu eins og fyrri daginn og leikurinn byggði mikið á því að þeir reyndu hluti upp á sitt einsdæmi. Báðir frábærir leikmenn, sérstaklega Lewis, en þegar þeim þvarr máttur í seinni hálfleik þá var fátt um fína drætti í sóknarleik heimamanna.

Hér má sjá tölur úr leiknum.

Falur og Guðjón fundu formúluna gegn Grindavík og er þeirra þáttur stór í sigrinum. Minna er um innáskiptingar en í deildarleikjum og flæðið í leiknum betra. Þetta var sigur liðsheildarinnar og Keflvíkingar mega vera stoltir af liði sínu.

Nú er aðeins stutt pása framundan og svo hefst BARÁTTAN UM ÍSLAND!!!

Áhorfendur voru frábærir í kvöld og engu líkara var en að við værum á heimavelli, þvílík var stemmningin!

AFRAM KEFLAVÍK!!!