Fréttir

Körfubolti | 11. janúar 2003

Glæsilegur lokasprettur undir forystu Fals Harðarsonar tryggði sigur gegn Njarðvík í Bikarnum

Keflavík vann 9 stiga sigur í hörkuleik í gær sem endaði 81-72 og var Falur Harðarson maður leiksins. Hann tók leikinn í sínar hendur í lokin og sýndi alla þá áræðni sem einkenndi hans leik hér áður fyrr. Líklegast hefur Falur átt sinn besta leik síðan hann kom heim aftur úr atvinnumennskunni frá Finnlandi fyrir um tveimur árum. Hann skoraði 18 stig og þar af 9 í síðasta leikhlutanum og það sem meira er, hann hætti að leita bara að Damon í lokin, stjórnaði liðinu af skynsemi og hugrekki og tók af skarið þegar þess þurfti með keyrslum inn í vörnina. Á síðustu mínútunum snerist leikurinn úr 64-68 í 74-68 og síðan 81-72, sem sagt, Keflavík skoraði 17 stig gegn 4 á lokasprettinum.

Það var mikill hiti í leikmönnum og áhorfendum í leiknum í gærkvöldi enda allt í húfi. Keflavík hafði telft djarft og skipt einum af aðalmönnum liðsins út fyrir nýjan leikmann, Edmund Saunders, og hafði sú ákvörðun átt sinn þátt í að magna stemminguna enn frekar. Keflvíkingar eru líklega sterkari “á pappírnum”, en Njarðvíkurhjartað er stórt og höfðu Njarðvíkingar unnið okkar menn tvisvar í deildinni, nú síðast á þriðjudaginn. Allt var því klárt fyrir sannkallaðan stórleik. Og áhorfendur sem fylltu húsið og voru vel með á nótunum allan tímann urðu ekki fyrir vonbrigðum, því liðin buðu upp á spennutrylli af bestu gerð.

Upphafsmínúturnar einkenndust af taugaveiklun og stressi og illa gekk að koma knettinum í körfuna. Liðin skiptust á að skora og villurnar hlóðust upp hjá Keflavík, en Keflvíkingarnir voru stundum full ákafir í vörninni og brutu oft klaufalega á gestunum. Saunders kom sterkur til leiks og setti m.a. tvær 3ja stiga körfur sem kom frekar á óvart, þar sem hann er fyrst og fremst “inside” leikmaður. Damon átti erfitt uppdráttar sem og skyttur Keflavíkur, en Teitur og Hunter fóru fyrir Njarðvíkingum sem léku grimma vörn frá fyrstu mínútu.

Staðan í hálfleik var 36-35 fyrir Keflavík, en á síðustu 2 sekúndum fyrri hálfleiks settu Njarðvíkingar 4 stig upp úr engu og náðu þannig að halda svo til jöfnu þegar leikmenn gengu til búningsherbergja. Í byrjun seinni hálfleiks virkuðu Keflvíkingar ákveðnari og byggðu upp forskot sem mest varð 9 stig, 48-39, ekki síst vegna góðs varnarleiks. En varnarleikurinn kostaði sitt og villurnar hlóðust upp. Og þegar Keflvískir áhorfendur voru farnir að slaka aðeins á tók Hunter til sinna ráða og setti tvær ævintýralegar 3ja stiga körfur. Einnig var Teitur sérlega grimmur og barði sína menn áfram með ódrepandi keppnisskapi. Enda jöfnuðu Njarðvíkingar í stöðunni 50-50 og svo virtist sem gestirnir ætluðu að síga framúr í lokin, eina ferðina enn. Þeir komust yfir og náðu mest 5 stiga forskoti, 60-65. Þá voru sumir stjórnarmenn Keflavíkur orðnir órólegir og Einar Skaftason fékk sér göngutúr. Einnig sást Daði Þorgríms læða sér bak við auglýsingaspjald. Menn þorðu vart að horfa.

Og ógæfan dundi á Keflavíkurliðinu. Jonni, Gunnar Einarsson og Sverrir Þór þurftu allir að yfirgefa völlinn með fimm villur. En þá kom Falur inná og gerði það sem hann kann best. Hann tók við stjórninni á vellinum og leiddi sína menn til sigurs eins og áður er lýst. En auðvitað gerði hann það ekki einsamall. Damon varð ákveðnari og sótti meira inn að körfunni og svo kom leikskilningur Saunders að góðum notum þar sem hann nýtti hæð sína vel til að senda boltann á fría menn undir körfunum. Ekkert stress hjá honum og auk þess hélt hann Friðriki Stefánssyni í 4 stigum. Leikurinn snerist og loksins, loksins, voru það Keflvíkingar sem spiluðu best í lokin, í stað þess að gefa eftir. Damon og Falur skoruðu mest í lokin og Hunter og Teitur voru í strangri gæslu og virkuðu þreyttir, enda búnir að vera á fullu allan leikinn. Breidd Keflavíkurliðsins skipti máli og Falur gerði útslagið. Sigur vannst í frábærum bikarleik tveggja góðra liða.

Ekki er annað hægt en að taka ofan fyrir Njarðvíkingum fyrir þeirra baráttu og sigurvilja. Þeir eru ekki jafn vel mannaðir og síðustu tvö ár, en engu að síður er liðsheildin mun sterkari en einstaklingarnir gefa til kynna. Baráttan er gríðarleg og Teitur Örlygsson er frábær keppnismaður og stórkostlegur leiðtogi. Hann leikur af lífi og sál og gefst aldrei upp. Við þökkum Njarðvíkingum fyrir góðan leik, þeir eiga heiður skilið fyrir baráttuna.

Fals þáttar Harðarsonar hefur þegar verið getið, en auk hans var Damon sérlega sterkur á lokasprettinum, hann setti 26 stig í leiknum og greip 12 fráköst. Auk þess slökkti hann gersamlega í Hunter í fjórða leikhluta. Saunders lék vel, skoraði 14 stig, hirti 8 fráköst, átti 8 stoðsendingar og stal 5 boltum. Ekki slæmt í fyrsta leik! Hann mun eflaust reynast liðinu vel og jafnvel verða enn öflugri eftir því sem hann fellur betur inn í leik liðsins. Guðjón var “solid” í leiknum, skoraði 10 stig, sem reyndar þykir ekki mikið á þeim bænum, en það sem meira var, kallinn spilaði glimrandi vörn allan tímann og lagði sig fram af öllu hjarta. Varnarleikur hefur aldrei verið sterkasta hlið Gaua, en hann vildi vinna, meira en allt annað, og keyrði sig út í vörninni. Menn vissu varla að hann ætti þetta til! Magga voru frekar mislagðar hendur í sókninni en hann var frábær í vörninni og bjargaði m.a. einu sinni boltanum á ótrúlegan hátt og hélt Teiti rólegum í lokin. Jonni stal boltanum glæsilega á mikilvægum tímapunkti, en var ólánsamur með villur, líkt og Sverrir og Gunnar Einarsson, sem báðir voru frekar rólegir sóknarmegin á vellinum. Davíð var fínn þann stutta tíma sem hann lék, sá drengur á ennþá mikið inni. Arnar Freyr kom ekki inná í þetta skiptið, en hann hefur sýnt í undanförnum leikjum að við megum búast við ýmsu frá honum á næstunni.

Heilt yfir var leikur Keflavíkur kannski ekki glæsilegur frá upphafi til enda, en það sem upp úr stendur er að Keflavíkurhjartað sló hratt og menn fundu áræðnina og hugrekkið sem til þurfti til að landa sigri í mikilvægasta leik vetrarins til þessa í “sláturhúsinu”.

Nú eru aðeins fjögur lið eftir í bikarnum, Keflavík, Hamar, ÍR og Snæfell og á mánudaginn verður dregið. Allt er mögulegt og vonandi fáum við heimaleik . . . : )

Næsti leikur í Intersport deildinni er gegn Tindastóli á fimmtudaginn á Sauðárkróki og síðan kemur bikarinn (heima eða úti) og svo heimaleikur í deildinni gegn Haukum eftir tvær vikur.

ÁFRAM KEFLAVÍK!