Fréttir

Karfa: Hitt og Þetta | 15. mars 2011

Glæsilegur styrktarleikur að baki

Meistaraflokkar Keflavíkur karla í körfubolta og fótbolta sameinuðu krafta sína og héldu styrktarleik
fyrir Birki Alfons Rúnarsson á föstudaginn sl. í íþróttahúsinu við Sunnubraut í Keflavík. Húsið var
troðfullt af áhorfendum en umsjónarmenn telja að um 550 manns hafi sótt leikinn og söfnuðust
um 680.000 kr.

Leiknar voru 14 mínútur í fótbolta í fyrri hálfleik og 20 mínútur í körfubolta í seinni hálfleik. Fótboltinn
náði 25 stiga forskoti í fyrri hálfleik, en fyrir hvert mark voru gefin 5 stig. Leikar jöfnuðust heldur betur
í seinni hálfleik og enduðu leikar jafnir, 54-54.

„Ég mun dekka Sigga stóra því ég er sá eini sem hef einhverja þyngd í hann,“ sagði Guðmundur
Steinarsson í viðtali við Víkurfréttir í hálfleik. „Og víst það er svona vel mætt á leikinn, þá mun ég
einnig troða fyrir áhorfendur,“ sem hann svo gerði við góðar undirtektir.

Strákarnir sem stóðu að leiknum fengu Eið Smára Guðjohnsen til að árita þrjá fótbolta sem voru svo
boðnir upp á leiknum. Boltarnir seldust á samtals 150.000 kr. og rann ágóðinn allur í málefnið. Einnig
gáfu strákarnir í fótboltaliðinu Birki Keflavíkurtreyju með „Team Birkir“ merkt aftan á treyjunni.
Unglingaráðið var svo með sjoppu á staðnum og gaf 40.000 kr. í málefnið.

Dómarar leiksins voru þeir Magnús Þórisson, fótboltadómari og Helgi Arason, körfuknattleiksdómari.
Sá sem lýsti leiknum var enginn viðvaningur, heldur hann Valtýr Björn Valtýsson, og fór hann á kostum.

 


Gerð var sérstök treyja fyrir Birki

 


"Get that shit out of here" - Almar hefur 2 metra forskot á Magga Þorsteins í hæð