Gleðilegt nýtt ár! Heimasíðan tekur við sér á ný
Eftir nokkurra daga frí vaknar heimasíðan nú úr jóladvalanum. Við munum reyna að halda lesendum á tánum um atburði körfunnar í Keflavík og reyna að vera dugleg við að fá fólk í viðtöl. Af nógu verður að taka því nú fer spennan vaxandi í boltanum.
Stúlkurnar eru í fullu fjöri og stefna hraðbyri í bikarúrslitin. Þeirra helsti keppinautur til margra ára, KR, hefur nú loks styrkt lið sitt með Kana og kannski jafnast leikar eitthvað við það. Sjáum til
Strákarnir fá verðug verkefni í vikunni, tvo leiki gegn Njarðvík, fyrst í deild og svo í bikar. Meira um það síðar.