Fréttir

Körfubolti | 21. október 2004

Glover gekk frá sprækum Haukum á lokamínútunum

Keflvíkingar mættu sprækir til leiks í kvöld og tóku leikinn strax föstum tökum. Leikurinn var opinn og hraður, lítið um varnir, og staðan var 30-23 eftir fyrsta leikhluta. Síðan settu Keflvíkingar í gírinn og negldi m.a. Gunnar Einarsson niður tveimur þristum á skömmum tíma. Munurinn jókst og varð mest 16 stig um miðjan annan leikhluta. Flest stefndi í klassískan stórsigur á heimavelli. En þá hvarf takturinn úr leiknum eins og hendi væri veifað og Haukarnir komust aftur inn í leikinn. Keflavík hafði þó enn forystu í hálfleik, 56-48.

Keflvíkingar gleymdu síðan að koma aftur til leiks í seinni hálfleik og Haukar gengu á lagið með lipran John Waller í aðalhlutverki. Þeir voru baráttuglaðir og komust yfir, mest fjórum stigum. Góð stemming var í þeirra hópi. Á sama tíma voru Keflvíkingar andlausir og frekar óskipulagðir, bæði í vörn og sókn. Einhvern veginn hafði maður þó alltaf á tilfinningunni að okkar menn myndu hrökkva í gírinn, þó það léti á sér standa.

En þegar um fimm mínútur lifðu leiks fór vörnin loks að herðast og pressan orsakaði mörg mistök hjá gestunum. Keflvíkingar gengu á lagið og stoppuðu sóknarleik Haukana. Sókn okkar manna var reyndar ekki sérlega markviss, en Anthony Glover sýndi mátt sinn og meginn á lokamínútunum og skoraði grimmt. Hann er sterkur og virðist komast í gott færi þrátt fyrir að tveir menn hangi á honum. Maggi smellti niður þristi úr horninu og gulltryggði sjö stiga sigur, 89-82.

Heilt yfir var leikurinn afar slakur hjá okkar mönnum og greinilegt er að enn er liðið að slípast til með nýja menn innanborðs. Nýji maðurinn, Mike, sýndi ágætis tilburði í sókninni og býr hann yfir góðu stökkskoti af stuttu færi, hann er hávaxinn og á auðvelt með að lyfta sér og skjóta yfir varnarmenn. Hann setti 13 stig í leiknum og tók 7 fráköst, en hann gærti örugglega tekið mun fleiri slík, þar á hann töluvert inni, má vera harðari. Það verður einnig að segjast að hann fékk boltann full lítið í sókninni því hann var með mun lágvaxnari mann á sér og virtist eiga auðvelt með að skora þegar boltinn barst. Auk þess hefur hann ágætt auga fyrir opnum mönnum ef hann er tvídekkaður.

Glover var yfirburða maður á vellinum, skoraði 34 stig og hirti 13 fráköst, en Arnar Freyr átti einnig skínandi leik, nýtti hraða sinn og leikni vel og hitti vel utan af velli. Hann má þó gæta sín þegar hann keyrir upp að körfunni, því stundum væri skynsamlegt að stoppa og taka stutt skot frekar en að fara alla leið. Aðrir leikmenn voru langt frá sínu besta og verðum við að vona að þeir fari að finna þann stöðugleika sem er nauðsynlegur. Fráköstin voru slök, báðu megin á vellinum, og 3ja stiga hittnin ekki góð. Verstur var þó varnarleikurinn, ef undan eru skildar síðustu mínúturnar, sem sést m.a. á góðri 3ja stiga nýtingu Haukanna sem var 50%, mest vegna þess að þeir fengu opin skot. Okkar lið á enn mikið inni og við vonum að næstu tvær vikur nýtist vel því þá koma stórlaxarnir frá Reims í Frakklandi í heimsókn.

Hér má sjá tölur úr leiknum.