Glover látinn fara en Nick kosinn MVP
Hann er óvæginn og síbreytilegur, heimur atvinnumannsins í körfubolta, svo mikið er víst. Góðir félagar okkar, þeir Nick og Tony, fengu í haust báðir samninga við Pro-A lið í Frakklandi, en eins og margir vita, er franska deildin ein sú sterkasta í Evrópu. Glover byrjaði ágætlega, en Nick afleitlega. Nick skoraði t.d. aðeins tvö stig í einum leiknum og ekkert í þeim næsta. Glover náði þó yfirleitt 10 stigum. (Þess ber að geta að yfirleitt er ekki ætlast til þess að "Kanar" skori jafn mikið í sterkum deildum Evrópu eins og hér á landi, 18 stig þykja t.d. yfirleitt ansi gott).
En fljótt skipast veður í lofti. Glover var látinn taka pokann sinn hjá Brest eftir fjórar umferðir, en um hann var sagt á Eurobasket "... the gap between the Icelandic league and the Pro A must be huger than expected. Glover showed very poor defending skills and was averaging 10.2 points, 6.2 rebounds and 4.2 turnovers per game in the first four games of the season." Sem sagt, vörnin var slök hjá kappanum og hann látinn fara. Hann fer þó ekki langt heldur fer yfir í Pro-B til liðs sem heitir Evreux. Það lið lét sinn Kana fara eftir hörmungar byrjun, en liðið ætlaði sér sigur í deilinni en hefur tapað öllum leikjunum hingað til. Vonandi tekst Glover að sýna sitt besta og hjálpa þeim í gang.
Nick the Slick er hins vegar á réttri leið. Þjálfarinn hans hjá Reims mundi vel hve öflugur hann var með Kef í Evrópukeppninni í fyrra og réð hann til liðsins. Einhverra hluta vegna lét hann Nick þó leika undir körfunum (sem fjarka eða fimmu), en Nick hefur hvorki líkamsburði né hæfileika í slíkt. Nick fór á fund með þjálfaranum og sagði honum að annað hvort færi hann út á völlinn (í þristinn) eða þá að hann myndi ekkert gagn gera. Og það var eins og við manninn mælt, í fjórðu umferðinni fór kappinn á kostum, gerði 23 stig, tók 10 fráköst og gaf 6 stoðsendingar. Og var valinn MVP fjórðu umferðar, en Frakkarnir velja MVP eftir hverja umferð. Nú er bara að vona að Nikkarinn haldi áfram á sömu braut.