Fréttir

Körfubolti | 31. janúar 2004

Góð liðsheild skóp sannfærandi sigur á Njarðvík

Það má segja að síðasta mínútan eða svo í leik Keflavíkur og Njarðvíkur í INTERSPORT-deildinni í gær hafi verið eign Narðvíkinga, en þeir skoruðu þá 11 stig í röð og minnkuðu muninn úr 18 stigum í 7 stigk, úr 90-72 í 90-83 á örskotsstundu. En allar hinar 39 mínúturnar voru í góðri gæslu okkar manna sem voru mun sterkari í þessum leik. Þar kom tvennt til, öðru fremur, góð vörn og góð liðsheild.

Keflavíkurmenn léku grimma vörn frá upphafi, en það var sérlega ánægjulegt að sjá, því hingað til hefur vörninni aðallega verið beitt í Evrópuleikjum, en sparlega hefur verið farið með hana í deildinni. Brandon var tekin föstum tökum og þeir Friðrik og Páll settir í stífa gæslu. Afleiðingin var sú að sóknarleikur Njarðvíkinga varð vandræðalegur og ómarkviss og okkar menn gátu keyrt upp hraðan og skorað grimmt. Keflavík náði strax góðu forskoti, 9 stig eftir fyrsta leikhluta og 16 stig í hálfleik, 53-37. Í þriðja leikhluta myndaðist stífla í sóknarleik Keflavíkur og munurinn hélst óbreyttur, en hann rokkaði í kringum 16-18 stig á löngum stundum, eða allt þar til ein mínúta var eftir, eins og áður er lýst.

Njarðvíkingar réðu ekki við varnarleik okkar manna í þessum leik og söknuðu greinilega Brentons. Páll var einna duglegastur og Friðrik nýtti færin þegar Derrick var utan vallar.

Hjá okkar mönnum var liðsheildin allsráðandi og gaman var að sjá að allir 10 leikmennirnir tóku virkan þátt í leiknum og allir lögðu af mörkum til sigurs. Þeir Derrick og Nick léku mun minna en oftast áður, aðeins 22 og 27 mínútur, en það kom ekki að sök. Derrick var líklega bestur okkar manna, með 26 stig og 10 fráköst. Nick vær sprækur, en menn leiksins voru kannski ungu strákarnir, Halldór og Arnar Freyr, sem komu með ferska vinda inn í leikinn. Halldór (13 stig) er sérlega skotviss (3 af 5 í þristum) og Arnar (12 stig) öflugur í sókn og vörn. Hjörtur (5 stoðs og 5 stolnir) og Sverrir voru einnig sérlega grimmir í vörninni gegn Brandon. Gunnar E og Davíð voru rólegur, og Magnús og Jonni áttu góða spretti.

Hér má sjá tölur úr leiknum.

Leiðinlegt atvik átti sér stað í síðasta leikhluta þegar Brandon Woudstra missteig sig illa, að því er virtist, án nokkurrar snertingar við aðra leikmenn. Hann hefur líklega rifið trefjar í liðböndum og er óvíst á þessari stundu hve lengi hann verður að ná sér. Hann bætist því á meiðslalista Njarðvíkinga, en þar er fyrir Brenton Birmingham. Svo gæti farið að annar þeirra, eða jafnvel báðir, yrðu fjarverandi í Bikarleiknum, en Njarðvíkingar eru örugglega að meta stöðuna núna og munu eflaust reyna að bregðast við með liðsstyrk.

Okkar menn geta verið sáttir með vörnina, en eiga að vera ósáttir með síðustu mínútuna. Hún var samt þörf áminning þess að leikurinn er ekki búinn fyrr en hann er búinn, eins og stundum er sagt svo gáfulega . . . :) Við getum gert betur og verðum að bæta leikinn stöðugt. Næsti leikur verður eflaust erfiðari, útileikur gegn Snæfelli, en þeir hafa líklega aldrei í sögunni haft á jafn sterku liði að skipa.