Fréttir

Körfubolti | 23. nóvember 2002

Góð stemming og getspakir lesendur

Um 60% þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun okkar á heimasíðunni af alvöru töldu að Grindavík og Keflavík myndu leika til úrslita um Kjörísbikarinn. Þessir lesendur reyndust sannspáir enda mætast Keflavík og Grindavík kl. 16.30 í dag.

"Allt er þá þrennt er" segir máltækið og nú skulum við vona að það eigi við í þessu sem öðru. Grindavík hefur nefnilega unnið Keflavík þrisvar í haust og mál er að linni. Síðasti leikur þessara liða var fyrir skömmu og þá leiddi Keflavík þar til að Grindavík skaut okkur í kaf skömmu fyrir leikslok.

Stuð á KR-leiknum!

Stuðningsmannasveitin ógurlega mætti á völlinn í gær og stóð fyrir sínu, líkt og venjulega. Sveitin er vel vopnum búin og stjórnar stuðningi af miklum myndarskap.

Annars var stemmingin mjög góð og umgjörðin flott. Í hálfleik fyrri leiksins sýndu fimleikastúlkur úr Keflavík listir sínar og í hálfleik seinni leiksins léku 6 og 7 ára drengir körfubolta við mikinn fögnuð áhorfenda. Þar að auki var áhorfendum gefinn kostur á að vinna sér inn Kjörískassa með því að hitta úr skotum af hæfilegu færi.

Nú er bara að vona að stemmingin verði ekki síðri í dag!