Góðar kveðjur frá Frökkunum í Toulon
Frakkarnir í Hyeres-Toulon komu hingað til lands í síðustu viku, eins og menn muna. Með þeim voru 15 stuðningsmenn. Hópurinn var afar ánægður með mótttökurnar í Keflavík og allan aðbúnað. Fararstjóri þeirra Frakkanna, Lydia að nafni, sendi Gunnari Jóhannssyni svohljóðandi tölvupóst að ferðinni lokinni:
Hello, Gunnar
I wanted to thank you very much for our great journey in Iceland.
Everybody was very friendly and all the people of your club helped us very much in every request we had.
Thanks a lot and especcialy for the trip we made to the Blue Lagoon and for the free entry. We wouldn't have missed that. It was great.
Thank everybody of your club and even if we lost the game, we enjoyed every minute of our two days in Iceland.
Bye Bye,
Lydia
Vissulega gaman þegar gestirnir eru ánægðir. Og það þrátt fyrir tapleik!