Góður 100-79 sigur á Haukum
Keflavík tryggði stöðu sína á toppnum í Iceland Express deildinni með góðu sigri á Haukum, 100-79.
Stelpurnar byrjuðu leikinn mjög vel og allt annað var að sjá til liðsins frá síðasta leik gegn Grindavík. Keflavík var með 25-14 stiga forustu eftir fyrsta leikhluta og sóknarleikur liðsins frábær. Forustan átti eftir að aukast því 16 lið skildu liðin af í hálfleik.
Gestirnir byrjuðu seinnihálfleik af krafti og skoruðu 8. stig í röð. Kiera Hardy var mjög öflug á þessum kafla og erfiðlega gekk að stöðva hana. Stelpurnar náðu 10 stiga forustu um miðjan 3. leikhluta og þá forustu létu þær aldrei af hendi. Haukar náðu að minnka munnin niður í 7. stig í byrjun 4. leikhluta en lengra komust þær ekki og þristur frá Marín kom forustu strax aftur í 10 stigin. Keflavík skoraði 14 þrista í leiknum og skotnýting liðsins til fyrirmyndar. ( 43 % ) Marín var með 4 af 6 og Pálina 4 af 10 og settu báðar niður mikilvægar körfur þegar Haukastelpur gerðu sig líklega til gera leikinn spennandi.
Síðustu mínutur leiksins var aðeins spurning um hve stór sigurinn yrði. Haukastelpur voru orðnar mjög pirraðar og slíkt er aldrei vænlegt til árangurs. Kara skoraði 100. stigið í leiknum úr víti en brotið var á henni þegar 12. sek. voru eftir. Loka skot gestanna geigaði og munurinn í leikslok 21. stig sem verður að teljast frábært gegn sterku liði Hauka.
Rannveig var mjög góð í kvöld ásamt Keshu, Pálínu, Marínu og Köru. Rannveig nýtti sínar mínútur mjög vel, skoraði 17. stig á 23. mínutum og hitti úr 8 af 12 skotum sínum. Stigahæst var Watson með 21. stig en kannski ekki hennar besti sóknarleikur en hún mataði liðið af góðum sendingum eins og góðum leikstjórnanda sæmir ( 11. stoðsendingar ) Kara var með 20 stig ásamt því að taka 9 fráköst og barðist vel allan leikinn. Pálína var með 16. stig og 7. fráköst ástamt því að spila fantavörn. Marín átti mjög góða innkomu af bekknum og er greinilega klár í toppleiki sem þennan. Marín var með 14 stig, 4. þrista og 7. stoðsendingar. Ingibjörg hafði hægt um sig sóknarlega í fyrrihálfleik og var með 7. stig í leiknum. Halldóra skoraði 5. stig og var með 4. fráköst á 16. mín.
Næsti leikur liðsins er í Lýsingarbikarnum á föstudaginn gegn Njarðvík.