Góður leikur hjá stelpunum í kvöld
Það var mikilvægur leikurinn í Keflavík í kvöld, enda bar hann þess merki smá taugaspenna í leikmönnum í fyrsta leikhluta. Keflavík var ekki ná fráköstum í fyrsta leikhluta og baráttan ekki alveg til staðar. Staðan eftir fyrsta leikhluta 15-20. Annar leikhluti var allt annað upp í teningnum og stelpurnar farna að spila þétta vörn og komst ÍS ekkert áleiðis í sókninni. Má segja að Keflavík hafi lagt grunn að sigrinum með frábærum leik í þessum leikhluta. Keflavík skoraði 24 stig gegn 7 stigum ÍS á þessum kafla og Rannveig, Alex, Birna, Anna María og Bryndís að spila frábærlega.
Seinni hálfleikur byrjaði vel hjá Keflavík en undir lok þriðja leikhluta kom smá fát á sóknarleikinn og ÍS náði á skömmum tíma að minka muninn úr 18 stigum niður í 6 stig. Leikmenn voru að tapa boltanum klaufalega og algjört óþarfa stress í gangi. Angel Mason stal boltanum í 2 sóknum í röð og skoraður auðveldar körfur. Staðan eftir þriðja leikhluta 53-47 og ÍS aftur komnar inn í leikinn.
Keflavík setti aftur í gírinn í fjórða leikhluta og náðu aftur upp 10-12 stiga forskoti. Ís náði þó að hleypa smá spennu í leikinn undir lokinn, en þó ekki til að fá áhorendur til trúa öðru en að Keflavík myndi klára leikinn.
Stelpurnar spiluðu vel í kvöld fyrir utan nokkrar mín. í lok þriðja leikhluta. Þær hleyptu óþarfa spennu í leikinn, sem þær voru með undir sinni stjórn. Nú er að stilla sama strengi fyrir næstu rimmu sem er á móti Grindavík um hvaða lið verður Íslandsmeistari 2005.
Bestar í leiknum í kvöld voru Alex sem spilar að mikili yfirvegun og átti margar sendingar sem glöddu augað ásamt því að skora 23 stig, taka 10 fráköst og gefa 9 stoðsendingar. Bryndís skoraði 21 stig og tók 9 fráköst. Margar körfur Bryndísar komu á mikilvægum augnablikum og virðist hún búa yfir ótrúlegri yfirvegun. Anna María og Birna spiluðu mjög vel og skorðuðu 10 og 12 stig. Rannveig spilaði mjög góða vörn ásamt því að skora 5 stig.