Fréttir

Körfubolti | 15. nóvember 2004

Góður lokasprettur dugði gegn Grindavík, 84-73

Leikurinn byrjaði vel og af miklum krafti, staðan 33-20 eftir fyrsta leikhluta. En svo slökuðu heimamenn á, full mikið, og gestirnir úr Grindavík gengu á lagið og söxuðu á forskotið. Einbeiting Keflavíkurliðsins fauk út í veður og vind og skotnýtingin var skelfileg, jafnvel hjá landsins bestu skyttum. Hægt og rólega minnkaði forskotið og Grindavík jafnaði loks í stöðunni 69-69 og aftur í 73-73 þegar tæpar tvær mínútur lifðu leiks.

En þá hrukku okkar menn loks í gírinn, eftir að hafa verið í hlutlausum ansi lengi. Maggi gaf á Nick í hraðupphlaupi sem átti glæsilegt "viðstöðulaust-afturábak-layup" og skömmu síðar átti Jonni flottustu tilþrif kvöldsins þegar hann greip frákast frá Nick hátt fyrir ofan hringinn og hamraði boltanum í gegnum hringinn. Strax á eftir náði Jonni frákasti og Arnar brunaði upp, settann oní og fékk víti að auki. Sem sagt, 100 góðar sekúndur í lokin og sigurinn var Keflvíkinga. Frekar slakur leikur, en afar góður endir.

Nick átti flottan leik og er í svaka formi, 26 stig og 12 fráköst. Arnar var sprækur, en aðrir voru undir getu, þótt flestir hafi átt ágætu stutta spretti.

Hér má sjá tölur úr leiknum.

Nú er rétt að fara að gyrða brækur í brók og ná fókus, því stórleikur er í vændum. Bakken Bears, dönsku meistararnir, koma í heimsókn á fimmtudaginn og þá verður kátt í Sláturhúsinu, stefnan er að vera ósigraðir á heimavelli og ef stemmingin í leikmönnum og áhorfendum verður lík því sem hefur verið á Evrópuleikjunum megum við búast við stórkostlegri skemmtun!