Fréttir

Körfubolti | 10. febrúar 2005

Góður sigur á KR í kvöld

Í leiknum í kvöld var ekkert gefið eftir af hvorugu liði enda mikið í húfi fyrir bæði lið enda komið að lokaspreytti í deildarkeppninni. Leikurinn var í járnum fram af, þó Keflavík hafi haft naum forskot í fyrsta leikhluta 23-22. Í öðrum leikluta náði Keflavík góðum leikkafla og breyti stöðunnu úr 23-22 í 37-25.  KRingar gáfust þó ekki upp og náðu að minnka muninn niður í  2 stig, 48-46 fyrir hlé. Í seinni háfleik hélt spennan áfram og KR náði jafna 64-64 og 69-69 fyrir 4 leikhluta. 4 leikhluti var í meira lagi fjörugur og allt ætlaði um koll að keyra á tímabili og dómararnir höfðu í nóg að snúast.  Keflavík náði með mikilli báráttu að klára leikinn og má þakka það góðri vörn sérstaklega á lokamínutum. KR misstu Echoles klaufalega útaf með 5 villur  í 3 leikhluta og frekar furðulegt að honum hafi ekki verið skift útaf eftir 4 villu.

Bestir í kvöld voru Nick sem barðist mjög vel, skoraði 25 stig og reif niður 19 fráköst!! Maggi var öruggið uppmálað og skoraði nokkra ''feita'' þrista og 6 í leiknum í öllum. Maggi var annar stigahæstur með 22 stig. Tony var að skila sínu, 21 stig og 17 fráköst. Nick, Maggi og Tony sáu um að skora mest öll stigin í leiknum en Sverrir (2 stig), Arnar( 6 stig), Jonni (8 stig )og og Gunnar E.( 4 stig ) spiluðu góða vörn og börðust vel allan leikinn. Baráttu sigur í höfn og maður leiksins Maggi fyrir mikilvægar körfur í leiknum.