Fréttir

Karfa: Konur | 19. janúar 2012

Góður sigur á Valsstúlkum

Keflavíkurstúlkur tefldu fram nýjum leikmanni í gærkvöldi þegar þær mættu Valsstúlkum, en leikið var í Toyota Höllinni. Svo fór að Keflavíkurstúlkur lönduðu góðum sigri 89-62. Gamli jálkurinn úr kvennaliði Keflavíkur, Rannveig Randversdóttir, var með góða umfjöllun um leikinn á karfan.is og verður hún nýtt hér:

Keflavík fékk Valskonur í heimsókn í Toyota-höllina í kvöld þar sem Valskonur veittu heimakonum litla fyrirstöðu. Leikurinn endaði 89-62 Keflavík í vil og voru þær Pálína Gunnlaugsdóttir og Jaleesa Butler stigahæstar með 23 stig hvor. Hjá Val var Melissa Leichlitner með 25 stig og sú eina með lífsmark í sínu liði. Þá tefldi Keflavík fram nýjum leikmanni innan sinnar raða en hún heitir Shanika Butler, er frænka Jaleesa Butler, og kemur frá Bandaríkjunum.
Leikurinn í kvöld var ekki sá allra besti sem spilaður hefur verið hér á landi. Hann var aldrei spennandi og var Keflavík með forystuna frá fyrstu mínútu leiksins. Fyrri hálfleikurinn einkenndist af því að Valskonur voru að gera mikið af mistökum sem að Keflavík voru fljótar að refsa fyrir. Það var gjörsamlega ekkert að gerast hjá Völsurum og var leikurinn eftir því. Það skemmtilegasta sem gerðist í fyrri hálfleik var skemmtilegur „buzzer“ í fyrsta leikhluta. Þegar flautað var til hálfleiks var staðan 40-20 fyrir Keflavík sem hreinlega áttu leikinn. Hjá Keflavík var J. Butler komin með 16 stig og Pálína með 14 stig, en hjá Val var Lacey Simpson með 10 stig.
 
Í seinni hálfleik voru Valskonur að spila stífari vörn og ætluðu að koma sér aftur inn í leikinn. Það kom aðeins líf í tuskurnar en það endaði stutt þar sem leikurinn fór aftur í sama horf þar sem heimakonur hreinlega áttu völlinn. Það var aldrei spurning hver myndi vinna leikinn heldur hversu stórt Keflavík myndi vinna. Eins og í fyrri hálfleik þá voru tveir „buzzerar“ sem var aðal skemmtunin fyrir áhorfendur á leiknum, en Birna Valgarðsdóttir var með einn fallegan í þriðja leikhlutanum og Leichlitner í þeim fjórða.
 
Það má segja að allt Keflavíkurliðið hafi verið að spila vel í kvöld og allir að setja sitt mark á leikinn. Stigahæstar eins og áður sagði var Pálína og J. Butler báðar með 23 stig. J. Butler splæsti einnig í 18 fráköst, 4 stoðsendingar og 3 varin skot og Pálína var að auki með 7 fráköst, 4 stolna og 3 stoðsendingar. Nýi leikmaður þeirra S. Butler spilaði nokkuð vel sinn fyrsta leik og endaði með 13 stig, 7 stoðsendingar og 4 stolna.
 
Hjá Val var Leichlitner eina með lífsmark í döprum leik liðsins. Hún endaði með 25 stig, 4 stoðsendingar, og 3 stolna. Simpson splæsti í tvennu 10 stig og 14 fráköst og þá var María Ben Erlingsdóttir með 10 stig og 8 fráköst.

 

 

 

 

 


Pálína var öflug í gær með 23 stig (mynd: karfan.is)