Fréttir

Karfa: Konur | 15. nóvember 2007

Góður sigur án Keshu í Hveragerði

Keflavík sigraði Hamar frá Hveragerði í Iceland Express-deild kvenna, 70-81 og eru því enn ósigraðar á toppi deildarinnar með 12. stig. 

Ljóst var fyrir leik að Kesha myndi ekki leika með vegna meiðsla sem hún hlaut í síðasta leik. Meira átti þvi eftir að mæða á öðrum leikmönnum liðsins, sérstaklega vegna þess að Bryndís er einnig meidd en þær 2. hafa verið stigahæstar í vetur. Aðeins 7. leikmenn léku í leiknum og Pálina og Ingibjörg léku alls 37. mín í leiknum sem er óvanalegt fyrir lið eins og Keflavík.

Keflavík náði fljótlega forustu í leiknum, leiddu í hálfleik 43-32. Þriðji leikhluti var slæmur en þar náðu heimastúlkur að komast inn í leikinn og skapa spennu fyrir lokakaflann. Staðan fyrir fjórða leikhluta var 56-58. Stelpurnar sýndi mikinn karakter í lokaleikhlutanum og sigruðu hann 14-23 og því leikinn með 11. stigum.

Bestar í leiknum  vorur Kara með 18 stig, 12. fráköst og 4. stoðsendingar og Pálina sem skoraði 19. stig. Ingibjörg var einnig góð og var með 14. stig.  Hrönn átti góðan leik, var með 14. stig og 5. fráköst og frábært að sjá hana stiga næsta skref sem leikmaður og taka á sig meiri ábyrgð. Rannveig var með 10 stig, Halldóra 4 og Marín 2. stig.

Hrönn er að spila vel í vetur. ( Mynd Runar@karfan.is )