Góður sigur Keflavíkurstúlkna í Grindavík
Topplið Keflavíkurstúlkna vann 19 stiga útisigur í Grindavík
Sigurganga meistaraflokks kvenna hélt áfram í dag þegar næst efsta lið deildarinnar, Grindavík, var heimsótt í Röstina. Keflavík hóf leikinn af krafti og náði strax forystu sem ekki var látin af hendi. Strax eftir fyrsta leikhluta var forystan orðin 7 stig, í hálfleik var staðan 32-45 fyrir Keflavík og lokastaða leiksins var 71-90. Sannfærandi sigur toppliðsins sem leikið hefur nú sex leiki án ósigurs.
Erla Þorsteinsdóttir lék sinn fyrsta leik í dag og náði strax að setja mark sitt á leikinn, skoraði 13 stig og hirti 6 fráköst, annars vakti vítanýtingin sérstaka athygli, stúlkan skoraði úr 9 af 10 tilraunum á vítalínunni.
Annars átti Sonia mjög góðan leik, setti 21 stig og hirti 14 fráköst. Anna María var einnig drjúg með 16 stig. Allar stúlkurnar fengu að spreyta sig og allar náðu þær að skora stig sem er góður árangur. Með þessum sigri treystu stúlkurnar stöðu sína á toppnum.