Góður útisigur á Grindavík hjá Bikarstúlkum Keflavíkur
Eftir spennuþrunginn leik í Bikarnum beið Keflavíkurstúlkna að halda til Grindavíkur í kvöld. Eitthvað voru okkar stúlkur seinar í gang og náðu sér ekki á strik í fyrri hálfleik. Kanin hjá Grindavík var líka sérlega erfið viðureignar og nýtti færin sín vel. Í háfleik hafði Grindavík 5 stiga forskot.
Seinni hálfleikur hófst einnig með jafnræði og í lok 3ja var Grindavík enn með naumt forskot. En í byrjun 4ða leikhluta þá hrökk hraðlestin loks í gírinn, með þær Birnu Valgarðs og Maríu Ben í broddi fylkingar. Birna fór gersamlega á kostum, skoraði yfir 30 stig og setti niður 7 þrista úr aðeins 9 skotum!! Hjörtur þjálfari breytti um varnaraðferð og lét stúlkurnar leika 2-3 svæðisvörn, en með því móti fékk Grindavíkurkaninn minna svæði til að athafna sig. Leikurinn snérist við og um 5 mínútum fyrir leikslok hafði góð vörn og ágæt keyrsla skilað 10 stiga forskoti fyrir Keflavík. Stúlkurnar héldu forystunni til leiksloka, en leikurinn endaði með 7 stiga sigri okkar, 72-79.
Hjörtur var ánægður með sigurinn, sagði að það væri oft erfitt að leika strax eftir titil. En stúlkurnar okkar svöruðu kallinu og gerðu það sem til þurfti. Næst á dagskrá er útileikur gegn ÍR, mánudaginn 16. feb. Þessi leikur var sá fyrsti í lokaumferðinni, eftir eru nú fjórir leikir - ÍR, KR, ÍS og Njarðvík.
Hér má sjá tölur úr leiknum (ekki komnar inn)