Fréttir

Karfa: Konur | 6. janúar 2011

Góður útisigur í kvöld

Keflavíkurstúlkur gerðu góða ferð í Hafnarfjörð í kvöld þegar þær spiluðu við Haukastúlkur, en lokatölur leiksins voru 62-72 fyrir Keflavík.

Keflavík komst yfir mjög snemma leiks og hélt þeirri forystu út til leiksloka, þrátt fyrir að Haukastúlkur hafi á köflum nagað nærri hælum þeirra.

Með sigrinum sitja Keflavíkurstúlkur í öðru sæti deildarinnar með 22 stig, tveimur stigum á eftir toppliði Hamars.

Adamshick átti enn einn tröllaleikinn fyrir Keflavík, en hún skoraði 23 stig og tók 22 fráköst. Bryndís Guðmundsdóttir skoraði 18 stig og Birna Valgarðsdóttir 14.

 

Jacqueline Adamshick átti flottan leik í kvöld (mynd: karfan.is)