Fréttir

Greiða þarf miða á Þorrablót Keflavíkur
Karfa: Hitt og Þetta | 8. nóvember 2013

Greiða þarf miða á Þorrablót Keflavíkur

Eins og áður hefur komið fram er orðið uppselt á Þorrablót Keflavíkur auk þess sem rúmlega 40 manns eru komnir á biðlista. Því er mjög mikilvægt að þeir sem hafa pantað borð og miða staðfesti miðakaupin hið fyrsta en eigi síðar en 15. nóvember nk. Séu miðar ekki greiddir og sóttir fyrir þann tíma gæti komið til þess að pantaðir miðar verði seldir öðrum.
 
Þeir sem hafa pantað miða og borð fyrir ákveðinn fjölda þurfa að ganga frá allri greiðslunni í einu og er það sá aðili sem skráður er fyrir pöntuninni sem ábyrgur er fyrir greiðslu. Öðruvísi er ekki hægt að fylgjast með hvaða miðapantanir hafi verið greiddar. Þeir sem hyggjast greiða sína miða er bent á að hafa samband við Guðmund Steinarsson í síma 899-4636 sem fyrst!
 
Hægt er að millifæra á eftirfarandi reikning: 1125-26-000894, kennitala 510894-2009. Einning mun Þorrablótsnefndin vera á öllum heimaleikjum Keflavíkur í körfu, bæði karla og kvenna, með posa en þar verður að auki hægt að nálgast miðana.